Skip to main content

126472

Þrátt fyrir óhagstætt veður, þoku og rigningarslitur þá fóru 27 á Kistufellið, sem er trúlega það erfiðasta af fjöllunum 5. Í þessari ferð birtust okkur duttlungar veðurguðanna því á toppnum var mjög hvasst en nánast logn niðri. Einhver hélt því fram að ekki væri að marka veðurspár í gönguvikunni, vegna þess að núna væri mikið af sumarafleysingafólki á Veðurstofunni.

Ljósm. Kristinn Þorsteinsson